fbpx
Kennarar

Kennarar

Svanhvít Sigurðardóttir
Aðstoðarskólastjóri

s: 8220397
email: svanhvits(at)gmail.com

Útskrifaðist sem sjúkraliði frá Sjúkraliðaskóla Íslands 1976 og starfaði við það  í mörg ár. Sótti gítar og píanónám á yngri árum. Lauk burtfararprófi í klassískum söng frá Söngskóla Sigurðar Demetz vorið 2012. Ásamt því að hafa sótt mörg námskeið bæði í söng og rythma hefur hún sótt einkatíma hjá Hlín Pétursdóttur hér heima  og Britt Hein og Jakob Beck í Kaupmannahöfn.

Útgefið efni: Kennslubók í blokkflautuleik; Nótur og Tónar 1. hefti og Nótur og Tónar 2. hefti með styrk frá Starfsmenntunarsjóði tónlistarkennara.

Leifur Gunnarsson
Skólastjóri, gítar, raf- og kontrabassi, píanó, ukulele, slagverk
s: 8689048
email: leifurgunnarsson(at)gmail.com

Leifur er kontrabassaleikari að mennt og lauk 2013 Ba prófi frá Rytmisk musik conservatorium í Kaupmannahöfn. Samhliða kennslu er hann virkur flytjandi innan jazzsenunnar, heldur úti tónleikaröðinni Jazz í hádeginu í samvinnu við Borgarbókasafn og heldur úti metnaðarfullu tónleikaverkefni fyrir krakka á á öllum aldri undir yfirskriftinni „Yngstu hlustendurnir“.

Leifur hefur gefið út þrjú hljóðrit í eigin nafni, Húsið sefur (2015), Tónn úr tómi (2020) og Jazzhrekkur (2023)

Ingrid Örk Kjartansdóttir
Söngur, píanó, saxófónn
s: 8220395
email: ingridork(at)gmail.com

Ingrid Örk hóf tónlistarnám 6 ára gömul. Alla grunnskólagönguna tók hún þátt í lúðrasveitastarfi og popphljómsveitum meðfram píanónámi sem var hennar aðalgrein. Ingrid Örk lauk framhaldsprófi í klassískum píanóleik frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, lauk kennaradeild FÍH og stundaði jazzpíanónám í sama skóla. Auk þess að hafa sótt ýmis námskeið hefur Ingrid sótt einkatíma í söng hjá Britt Hein í Kaupmannahöfn og kemur reglulega fram sem jazzsöngkona.

Árið 2014 lauk Ingrid bachelornámi í tónlistarfræðum frá Kaupmannahafnarháskóla þar sem lokaritgerð hennar fjallaði um íslenska dægurtónlistarsenu á árunum eftir efnahagshrunið.

Ingrid lauk meistaranámi í menningarfræði frá Háskóla Íslands árið 2022. Námið nýtti hún til að skoða tónlist frá hinum ýmsu sjónarhornum menningarfræðinnar; popptónlist, klassíska tónlist og jazztónlist.

Jón Ingimundarson
Píanó, flauta, klarinett
s: 892 3182
email: joningim@gmail.com

Jón hóf nám við Tónlistarskólann á Hólmavík fimm ára gamall og lærði bæði á orgel og píanó. Hann tók þátt í hljómsveitarstarfi af ýmsu tagi sem byggðist mikið á að spila eftir eyranu og læra hljóma. Hann hóf nám í jazzpíanóleik við Tónlistarskóla FÍH árið 2008 og úskrifaðist þaðan árið 2015.

Diljá Finnsdóttir
Fiðla, víóla, forskóli
s: 8987151
email: diljafinns(at)gmail.com

Diljá hóf ung fiðlunám við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún útskrifaðist þaðan vorið 2020 bæði með framhaldspróf á fiðlu og miðpróf á víólu. Haustið 2021 hóf hún nám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan vorið 2024 með BA gráðu í Skapandi tónlistarmiðlun og aftur vorið 2025 með B.Mus.Ed. í hljóðfærakennslu. Diljá sérhæfði sig á víólu í háskóla en er bæði fiðlu- og víóluleikari. 

Oliver Rähni
Píanó
s: 8533286
email: oliverraehni@gmail.com

Oliver hóf píanónám 8 ára gamall við Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Hann lauk þaðan framhaldsprófi í klassískum píanóleik árið 2022 með hæstu einkunn. Hann hefur komið fram sem einleikari bæði hér á landi og erlendis, þar á meðal með sinfóníuhljómsveitum. Oliver stundar nám í píanóleik við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur. Hann hefur áður starfað sem píanókennari við Tónlistarskóla Bolungarvíkur og sem píanókennari og meðleikari við Tónlistarskóla Ísafjarðar.

Fannar Sigurðsson
Gítar, Trónfræði
s: 8447449

email: sigurdsson.fannar(at)gmail.com

Fannar hóf nám í klassískum gítarleik 10 ára gamall við Tónlistarskóla Kópavogs. Á menntaskólaárunum heillaðist hann af blús- og jazztónlist og að lokinni menntaskólagöngu gekk hann í Tónlistarskóla FÍH og síðar MÍT. Hann útskrifaðist þaðan með framhaldspróf í rytmískum gítarleik árið 2022.  Eftir útskrift flutti Fannar til Þýskalands og lærði skólaárið 2022-2023 við tónlistarskólann Hochschule für Musik und Tanz í Köln undir leiðsögn Frank Haunschild gítarleikara. Fannar stundar nám við Listaháskóla Íslands á Rytmískri söng- og hljóðfærakennslubraut.

Kjartan Eggertsson
Skrifstofustjóri, afleysingar
s: 8220398
email: kjartan(at)harpan.is

Kjartan er menntaður tónlistarkennari frá Tónskóla Sigursveins og organisti frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.

Kjartan starfaði sem tónlistarkennari í Tónskóla Sigursveins, Tónlistarskólanum á Akranesi og á Bíldudal og var jafnframt organisti Bíldudalskirkju. Skólastjóri Tónlistarskóla Dalasýslu í 15 ár og Tónlistarskóla Ólafsvíkur í 5 ár.  Starfaði einnig sem organisti og kórstjóri á báðum stöðum öll árin.Kjartan var skólastjóri Tónskóla Hörpunnar frá 1999 en sinnir nú skrifstofustörfum og afleysingum.

Útgefið efn: Áfram stelpur, hljómplata 1975, Nokkur íslensk lög umskrifuð fyrir gítar, 1977, Vor í Dölum, hljómplata, kórar Dalasýslu 1983, Leikum á gítar, kennslubók í gítarleik 1984, Þú gafst mér akurinn þinn, körlög við Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar 2001

Mariann Rähni
Píanó

s: 8613266
emial: mariannmakk(at)gmail.com

Mariann hóf ung píanónám við Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Hún lauk framhaldsprófi í píanóleik vorið 2024 og fékk hæstu einkunina fyrir öll píanóverk á prófinu. Hún hefur komið fram sem einleikari bæði hér á landi og erlendis. Samhliða kennslu stundar Marian píanónám við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Peter Máté og Eddu Erlendsdóttur.