fbpx

Browsed by
Author: leifurgunnarsson@gmail.com

Þematónleikar

Þematónleikar

Í vetur hafa nemendur og kennarar unnið hörðum höndum að þema ársins: Þjóðlög ýmissa landa. Á föstudaginn gefst okkur loksins tækifæri til að sýna afraksturinn á glæsilegum tónleikum í tengslum við Barnamenningarhátíð.

Fram koma nemendur á öllum aldri, frá 5 til 18 ára, auk þess sem kennarar skólans munu leika með. Tónleikarnir gefa frábært þversnið af því fjölbreytta starfi sem fer fram innan skólans og eru kjörið tækifæri fyrir tónlistaráhugafólk til að koma og njóta.

  • Tími: Föstudaginn 24. apríl kl. 17:00.
  • Staður: Borgarbókasafn, Spöngin
  • Aðgangseyrir: Ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Öskudagur og vetrarfrí

Öskudagur og vetrarfrí

Öskudagur í dag

í dag er öskudagur, þetta er hefðbundinn kennsludagur í tónlistarskólanum, en við biðjum þá sem ekki sjá sér fært að mæta í tíma að láta sinn kennara vita. Netföng og símanúmer má finna á heimasíðunni. Annars hvetjum við alla til að koma við í Tónskólanum á milli kl 14:30 og 17 og syngja hjá okkur.

Vetrarfrí grunnskólanna

Tónskólinn hefur vetrarfrí sömu daga og grunnskólar Reykjavíkurborgar (19.-22. febrúar). Njótið samverunnar og munið að hér er fínt tækifæri til að fá krakkana til að vera duglega að spila heima.

Opið hús í Tónskólanum 7.febrúar

Opið hús í Tónskólanum 7.febrúar

Dagur tónlistarskólanna veður haldinn hátíðlegur með opnu húsi í Tónskóla Hörpunnar Spönginni 39, laugardaginn 7. febrúar n.k. kl. 13:00 – 15:00.

Nemendur munu flytja tónlistaratriði og hægt verður að prófa allskonar hljóðfæri og spjalla við starfsfólk skólans. Auk þess verður hægt að prófa að syngja inn á upptöku.

Boðið verður upp á kaffiveitingar og eru allir velkomnir, bæði þeir sem stunda nám við skólann og þeir sem vilja kynna sér starfsemina.

Gleðileg jól

Gleðileg jól

Kæru foreldrar og nemendur,

Kennarar og stjórnendur Tónskóla Hörpunnar óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla. Fyrsti kennsludagur vorannar er 5. janúar. Megi nýtt ár vera fullt af tónlist.

Eins og alltaf á annaskiptum er smá hreyfing á nemendum og því eigum við örfá pláss fyrir nýja nemendur.

kv, Starfsfólk Tónskóla Hörpunnar

Jólatónleikar

Jólatónleikar

Jólatónleikar Tónskóla Hörpunnar 2025 verða haldnir dagana 4. og 5.des næstkomandi. Verðum við með 6 tónleika og fara þeir fram í Borgum, Spönginni 43, 112 Grafarvogi. Kennarar hafa sent tímasetningar á sína nemendur en ef einhverjar spurningar vakna er alltaf hægt að senda okkur tölvupóst á email skólans.

Tónfundir og vetrarfrí

Tónfundir og vetrarfrí


Nú er komið að tónfundum hjá okkur í Tónskóla Hörpunnar. Þið sem ekki þekkið tónfundi eru það óformlegir tónleikar þar sem við hittumst í litlum hópum og spilum eitt lag fyrir hvort annað. Salurinn okkar er smár og því bjóðum við öllum nemendum að hafa einn með til að hlusta.  Þetta tekur stutta stund og við reynum eftir fremsta megni að hafa þetta afslappað.

Upplýsingar um tímasetningar fáið þið frá ykkar kennara en skipulag er svona:

Diljá 15.okt,
Leifur 15.okt (gítarnemendur og bassanemendur)
Jón 16.okt.
Ingrid 20.okt
Fannar, 21.okt,
Oliver 22.okt,
Maríann 22.okt
Steini 22.okt,
Leifur 21-22.okt (forskólanemendur)

Vetrarfrí

Vetrarfríið í hjá okkur er samhliða grunnskólanum svo engin kennsla er dagana 24.-28. október.

Upphaf haustannar

Upphaf haustannar

Í þessari viku vinna kennarar að skipulagningu stundaskrár haustannar. Allir sem eru skráðir í nám hjá okkur eiga vona á skilaboðum eða símhringingu frá sínum kennara.

Kennsla hefst svo á öllum kennslustöðum mánudaginn 1.september.

Við eigum enn möguleika á að bæta við nemendum, endilega hafið samband sem fyrst til að skoða hvaða möguleikar eru til staðar. Sérstaklega langar okkur að fjölga nemendum í rafgítar- og rafbassanámi.

Vortónleikar 19. og 20.maí

Vortónleikar 19. og 20.maí

Vortónleikar Tónskóla Hörpunnnar fara fram dagana 19. og 20. maí næstkomandi. Allir nemendur hafa fengið úthlutað tónleikatíma frá sínum kennara. Tónleikarnir eru að vanda haldnir í Borgum, Spönginni 43 sem er næsta hús við tónskólann.

Við biðjum alla að mæta tímanlega og æskilegt er að nemendur mæti í tónleikaklæðnaði. Eftir tónleika fá nemendur vetrarumsögn afhenda hjá sínum kennara svo nauðsinlegt er að sitja tónleika til enda.

Páskafrí, innritun nemenda

Páskafrí, innritun nemenda

Nú er opið fyrir umsóknir nýrra nemenda.

Til að sækja um nám í Tónskóla Hörpunnar þarf að fylla út umsókn á heimasíðunni okkar. Öllum umsóknum er svarað.

Nemendur sem þegar stunda nám við skólann þurfa ekki að sækja um sérstaklega fyrir næstu önn. Við biðjum ykkur hinsvegar um að láta okkur vita ef einhverjar breytingar verða, t.d. ef nemandi vill skipta um hljóðfæri, taka sér pásu eða þarf að breyta um kennslustað. Þetta má gera með því að senda okkur tölvupóst á harpan@harpan.is

Nú eru páskar á næsta leiti og er páskafrí okkar eins og grunnskólanna, frá 14.-21.apríl. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 22.apríl samkvæmt stundaskrá.

Vetrarfrí og tónfundir

Vetrarfrí og tónfundir

Nú gengur í garð vetrarfrí en við erum í vetrarfríi samhliða grunnskólum Reykjavíkurborgar 24. og 25. febrúar. Engin kennsla fer fram þessa daga. Nú er ekki vetrarveður út svo þá er upplagt að nota fríið m.a. í heimaæfingar. Það styttist í tónfundi hjá okkur en þeir eru á dagskrá 10.- 20.mars. Nánari upplýsingar koma frá ykkar kennara.