fbpx

Browsed by
Author: leifurgunnarsson@gmail.com

Innritun á haustönn

Innritun á haustönn

Innritun á haustönn stendur yfir. Kennsla fer fram að Bæjarflöt 17, Grafarvogi og einnig í eftirtöldum grunnskólum: Kelduskóla Korpu, Kelduskóla Vík, Vættaskóla Borgum, Vættaskóla Engjum, Húsaskóla, Foldaskóla, Rimaskóla, Hamraskóla, Ártúnsskóla, Háaleitisskóla Hvassaleiti og Háaleitisskóla Álftamýri.

Vortónleikarnir

Vortónleikarnir

Vortónleikarnir 2014 í Grafarvogskirkju:

Fimmtudagur 15.maí kl. 17:00 nemendur, Hrafnhildar og Stefáns
Fimmtudagur 15.maí kl. 18:15 nemendur, Hrafnhildar og Stefáns
Fimmtudagur 15.maí kl. 19:30 nemendur, Veru, Svanhvítar og Kjartans
Föstudagur 16.maí kl. 17:00 nemendur, Þórunnar, Svanhvítar og Kjartans
Föstudagur 16.maí kl. 18:15 nemendur, Eddu, Þórunnar, Svanhvítar og Kjartans
Föstudagur 16.maí kl. 19:30 Bland í poka – nemendur frá öllum kennurum

Athugið að í einhverjum tilfellum þegar um systkini er að ræða er brugðið út af upptalningunni hér fyrir ofan. Nánari upplýsingar hjá kennurum

Páskafríið

Páskafríið

Páskafríið í tónskólanum er eins og í grunnskólunum. Það hefst 14. apríl og stendur fram á þriðjudag 22. apríl. Kennsla hefst aftur 23. apríl. Þann 24. apríl er Sumardagurinn fyrsti, en hann er lögbundinn frídagur og því enginn kennsla þann dag.

Frístundakortið

Frístundakortið

Frístundakortið verður fært um miðjan mánuðinn og þá þurfa forráðamenn nemenda að ráðstafa til niðurgreiðslu á námsgjöldum í skólanum ef ætlunin er að nota fjármuni kortsins til þess. Sú ráðstöfun kemur þá til lækkunar á eftirstöðvum námsgjalda.