HAUSTÖNN 2021 – INNRITUN NÝRRA NEMENDA
Undirbuningur haustannar og innritun nýrra nemenda stendur yfir.
Gerð stundaskrár hefst í vikunni 23. – 27. ágúst um leið og grunnskólinn byrjar.
Undirbuningur haustannar og innritun nýrra nemenda stendur yfir.
Gerð stundaskrár hefst í vikunni 23. – 27. ágúst um leið og grunnskólinn byrjar.
Næsta sunnudagskvöld 20. júní munu tónlistarnemar úr Tónskóla Hörpunnar, Tónlistarskólanum í Grafarvogi og Tónstofu Valgerðar ásamt fleiri skólum láta ljós sitt skína í Netnótunni á sjónvarpsstöðinni N4.
Netnótan er samstarfsverkefni margra tónlistarskóla. Alls eru um 90 tónlistarskólar starfandi á landinu með 15 þúsund nemendur.
Ath. breytingu.
Vortónleikarnir verða fimmtudaginn 20. maí og áður auglýstir tónleikar á föstudeginum verða færði til þriðjudags 25. maí.
Vortónleikar Tónskóla Hörpunnar verða haldnir fimmtudag og föstudag 20. og 21. maí.
Vegna stöðugrar og langvarandi óvissu um takmarkanir á samkomuhaldi verða tónleikarnir streymistónleikar eins og jólatónleikarnir voru.
Tækifæri felast í því að hafa streymistónleika þar sem ættingjar og vinir geta hlýtt á hljóðfæraleikinn hvar sem þeir eru staddir á jarðarkringlunni. Forráðamenn fá sendan „link“ á tónleikana sem þeir mega deila með sínum nánustu.
Vegna aðlögunar skólanna að nýjum Covid reglum fellur hljóðfærakennsla niður í grunnskólanum á morgun 6. apríl. Kennsla í Spönginni verður með eðlilegum hætti eftir hádegi.
Tónfræði I fellur niður á morgun 6. apríl.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum í dag fellur öll kennsla niður á morgun á nánast öllum skólastigum þar með talið tónlistarskólum.
Hvernig kennslu verður háttað eftir páskaleyfi er ekkert hægt að segja til um núna, það mun tíminn einn leiða í ljós. Kennsla mun byrja að nýju þriðjudaginn 6. apríl og munu kennararnir verða tilbúnir í fjarkennslu ef það verður raunin. Vonum samt að svo verði ekki og óskum við þess að þið getið öll notið páskaleyfisins þrátt fyrir þetta bakslag í faraldrinum.
Mánudaginn og þriðjudaginn, 22. og 23. febrúar er vetrarfrí í Tónskóla Hörpunnar og fellur því niður öll kennsla þá daga.
Mánudagur 4. janúar er starfsdagur og fyrsti kennsludagur á vorönn 2021 er þriðjudagur 5. janúar.
Kennt verður samkvæmt stundaskrá haustannar.

Kennslustaðirnir eru: Spöngin, Engjaskóli, Húsaskóli, Sæmundarskóli, Ártúnsskóli, Álftamýrarskóli
Sótt er um á RafrænReykjavík
Nánari upplýsingar í síma skólans 567 0399 og 822 0398

You must be logged in to post a comment.