Kæru foreldrar/
forráðamenn
Nú þurfum við að
skerpa á öllum sóttvarnarreglum okkar í ljósi þess að smitum af Covid-19 hefur
fjölgað mikið síðustu daga.
Foreldrar mega ekki lengur koma inn í
tónskólann, þeir þurfa að kveðja börnin sín fyrir framan dyr skólans.
Nemendur eiga að
koma með sínar eigin nótnabækur, verkefnabækur, blýhanta, yddara og strokleður
og önnur þau áhöld sem þeir eru vanir að nota í tónskólanum.
Gætum vel að
okkar eigin smitvörnum með handþvotti, spritti og fjarlægð eins og Þórólfur
minnir okkur stöðugt á.
Gangi ykkur öllum
sem allra best.
Svanhvít Sigurðardóttir
skólastjóri Tónskóla Hörpunnar
You must be logged in to post a comment.