Vetrarfríið
Framundan er vetrarfrí. Það stendur frá föstudeginum 28. febrúar og fram á mánudag 2. mars. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 3. mars.
Framundan er vetrarfrí. Það stendur frá föstudeginum 28. febrúar og fram á mánudag 2. mars. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 3. mars.
Laugardaginn 8. febrúar verður Opið hús hjá Tónskóla Hörpunnar í Spönginni kl. 14:00 – 16:00 í tilefni af Degi tónlistarskólanna.
Hljóðfærakynning.
Tónlistaratriði nemenda.
Kaffiveitingar og spjall.
Allir velkomnir.

Fyrsti kennsludagur vorannar er mánudagur 6. janúar.
Í upphafi er kennt eftir óbreyttri stundaskrá frá því fyrir jól.
Kennarar nýrra nemenda munu verða í bandi um helgina eða strax eftir helgi.
Endurbættar kennslustofur Ártúnsskóla verða teknar í notkun 13. janúar og þá munum við aftur hefja kennslu þar. Nemendur Leifs verða á þriðjudögum og nemendur Kjartans á miðvikudögum. Óvíst með nemendur Svanhvítar. Fyrsti tími Ártúnsskólanemanda verður þó eins og áður er nefnt samkvæmt stundaskrá fyrir jól og í Spönginni.
Eins og áður hefur komið fram þurfti að fella niður tvenna jólatónleika í dag 10.des. Nú er ljóst að við munum færa tónleikana og fara þeir nú fram 17. desember í Kirkjuselinu í Borgum kl. 17:30 og 18:30.
Dagskráin hliðrast um klukkustund svo að þeir nemendur sem áttu að spila kl. 18:30 eru nú kl. 17:30 og þeir sem áttu að spila kl. 19:30 verða nú kl. 18:30.
Við vonum að allir geti verið með og sýni þessari tilfærslu skilning. Þetta er í fyrsta sinn í 20 ára starfi skólans sem fella þarf niður tónleika og þetta því algjört neyðarúrræði.

Sökum afleitrar veðurspár og tilmæla borgaryfirvalda að fólk haldi sig innandyra, verðum við að fella niður kennslu eftir hádegi á morgun, þriðjudaginn 10.des.
Jólatónleikar sem áttu að fara fram kl. 18:30 og 19:30 falla einnig niður og tilkynnt verður síðar hvort mögulegt verði að halda þá tónleika á öðrum tímapunkti. Vinsamlegast athugið að tónleikar 11.des eru samkvæmt áætlun.
Jólatónleikar Tónskóla Hörpunnar verða haldnir í kirkjuselinu í Borgum í Spönginni dagana 9. – 11. desember.
Nú fer vetrarfíinu að ljúka. Kennsla hefst aftur á þriðjudaginn 29. október, á sama tíma og grunnskólarnir.
Nú er vetrarfrí í tónskólanum, en við höldum vetrarfrí samhliða grunnskólum borgarinnar. Því er engin kennsla frá 24.- 28.oktober. Sjáumst svo aftur þriðjudaginn 29.október.
Nú líður að því að haustönnin hefjist. Grunnskólinn byrjar í þessari viku og tónskólinn fimmtudaginn 29. ágúst.
Kennarar skólans munu hafa samband við nemendur í næstu viku.
Skilti skólans á Spönginni hefur verið tekið niður til lagfæringar. Skólinn er enn á sínum stað.
You must be logged in to post a comment.