Innritun á haustönn 2015
Innritun nýrra nemenda á haustönn 2015 er hafin. Sótt er um skólavist á vef borgarinnar; RafrænReykjavík.
Innritun nýrra nemenda á haustönn 2015 er hafin. Sótt er um skólavist á vef borgarinnar; RafrænReykjavík.
Vortónleikar Tónskóla Hörpunnar verða dagana 11. og 12. maí. Að þessu sinni verða þeir haldnir í Borgum í Spönginni sem er þjónustumiðstöð fyrir Eirborgir. Borgir er gegnt nýja borgarbókasafninu.
Nánari upplýsingar um tónleikana munu kennarar veita nemendum í vikunni.
Laugardaginn 25. apríl var Opið hús í Tónskóla Hörunnar. Margir nemendur, foreldra og gestir litu við og þökkum við þeim öllum fyrir komuna. Nokkrir nemendur „tóku lagið“ og á þessari mynd leikur Ásta Steindórsdóttir ásamt kennara sínum Ingridi Örk Kjartansdóttur á flygilinn
Tónskóli Hörpunnar tekur þátt í Barnamenningarhátíð 2015 þar sem nemendur tónskólans verða með tónleika í Bókasafninu Spöng, 22. apríl kl. 17:00. Sjá nánar: www.barnamenningarhatid.is/
Laugardaginn 25. apríl verður opið hús í Tónskóla Hörpunnar, milli kl. 14:00 og 16:00.
Nemendur leika, kennsla fyrir opnum dyrum, hljóðfærakynning, myndasýning, kaffiveitingar.
Upplagt fyrir nemendur og foreldra að koma og skoða ný húsakynni skólans í Sönginni 39 (fyrir ofan Apotekið).
Nú er páskafrí. Þriðjudagurinn 7. apríl er starfsdagur og þvi er fyrsti kennsludagur eftir páska miðvikudagur 8. apríl, eins og í flestum grunnskólum.
Um nokkurt skeið hefur Reykjavíkurborg falast eftir húsnæði skólans að Bæjarflöt 17 undir aukna starfsemi í dagvistun fatlaðra. Því flytur Tónskóli Hörpunnar nú höfuðstöðvar sínar upp í Spöng. Nýja húsnæðið er við hliðina á borgarbókasafninu og fyrir ofan apótekið. Öll kennsla er nú þangað flutt. Við Spöngina stoppa 4 strætisvagnar, svo auðvelt á að vera fyrir alla að sækja tíma á nýa staðinn.
Nú hafa nöfn allra nemenda verið færð á Frístundakortið og hægt að ráðstafa af því upp í námsgjöld skólans. Hámarksupphæð er kr. 35.000.
Kennsla hefst aftur eftir áramót mánudaginn 5.. janúar. Fyrstu dagana verður óbreytt stundaskrá frá því fyrir jól.
Innritun nýrra nemenda stendur yfir. Sótt er um á Rafrænni Reykjavík
You must be logged in to post a comment.